MAK
Leyni
Höldur
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Fréttir

NICEAIR hættir við flug til Akureyrar

Eftir Hákon Orri Gunnarsson·
niceair
niceair· kaffid.is

NICEAIR tilkynnti í gær að tekin hafi verið ákvörðun um að halda ekki úti neinu áætlunarflugi til eða frá Íslandi það sem eftir lifir sumars 2026 og yfir alla vetraráætlunina 2026/27.

Ákvörðunin var tekin í kjölfar ítarlegrar skoðunar á alþjóðlegu rekstrarumhverfi og var hún ekki tekin af léttúð. Þrátt fyrir að eftirspurn eftir ferðalögum sé enn lofandi á mörgum evrópskum mörkuðum, skapar pólitískt og efnahagslegt ástand á heimsvísu áfram verulega óvissu fyrir flugrekstur.

Einn helsti þátturinn að baki þessari ákvörðunar er viðvarandi óstöðugleiki í alþjóðastjórnmálum, þá sérstaklega óleyst staða mála er varða Íran. Sú ólga sem þetta hefur skapað á alþjóðlegum orkumörkuðum hefur leitt til óvenju hás og ófyrirsjáanlegs eldsneytisverðs, sem gerir langtímaskipulagningu rekstrar sífellt erfiðari.

Á sama tíma hafa nokkrir samstarfsaðilar í rekstri og viðskiptum orðið töluvert varkárari en búist var við. Þrátt fyrir uppbyggilegar viðræður eru margir samstarfsaðilar um þessar mundir ekki tilbúnir til að skuldbinda sig til langs tíma eða taka á sig aukna rekstraráhættu við núverandi markaðsaðstæður. Þetta hefur takmarkað verulega möguleikana á að koma á fót stöðugum og efnahagslega ábyrgum rekstri til og frá Íslandi á næstu mánuðum.

Eins og áður hefur komið fram mun félagið þess í stað einbeita sér að því á komandi vetrartímabili að stækka flugnet sitt á meginlandi Evrópu. Í tilkynningunni segir að á öðrum mörkuðum njóti NICEAIR áfram mikils stuðnings flugvalla, svæðisyfirvalda, viðskiptasamstarfsaðila og þjónustuaðila, sem gerir flugfélaginu kleift að stefna að sjálfbærum vexti þrátt fyrir krefjandi ástand í heiminum

NICEAIR er áfram sannfært um að Akureyri verðskuldi öflugar og áreiðanlegar flugsamgöngur. Hins vegar sé ekki hægt að byggja upp sjálfbæran flugrekstur á væntingum einum saman. Hann krefst stöðugra markaðsaðstæðna, áreiðanlegs samstarfs og fyrirsjáanlegs efnahagsumhverfis.

Félagið mun því ekki heita því að snúa aftur á íslenska markaðinn fyrr en þessi grundvallarskilyrði eru fyrir hendi. Öll framtíðaráform um að hefja flug að nýju munu eingöngu byggjast á viðskiptalegri hagkvæmni og sjálfbærni til langs tíma litið en ekki á skammtímamarkmiðum.

Tengdar greinar

Uppfært: 6. september 2026