NTC

Niceair frestar áætlunarflugi til Düsseldorf

Niceair frestar áætlunarflugi til Düsseldorf

Norðlenska flugfélagið Niceair hefur frestað áformum um beint flug milli Akureyrar og Düsseldorf í Þýskalandi. Ætlunin var að hefja flug á milli staðanna í maí á þessu ári en nú hefur verið tekið ákvörðun um að fresta áætlunarfluginu um eitt ár. Þetta kemur fram á vef Akureyri.net.

Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson, forstjóri Niceair, staðfesti þetta í samtali við Akureyri.net. Þorvaldur segir í samtali við Akureyri.net að ástæðan sé fyrst og fremst sú að endursöluaðilar í Þýskalandi fái ekki hótelrými á Akureyri og Norðurlandi. Í umfjöllun Akureyri.net segir einnig að eftirspurnin fyrir fluginu hér norðan heiða hafi verið dræm.

Frekari umfjöllun um málið má finna á Akureyri.net með því að smella hér.

VG

UMMÆLI

Sambíó