Öllum flugferðum flugfélagsins Niceair til London í júní hefur verið aflýst. Þetta kom fram í tilkynningu frá flugfélaginu í gær. Í tilkynningunni segir að í ljósi vandkvæða við flug til og frá Bretlandi muni Niceair aflýsa fyrirhuguðum flugferðum til Bretlands í júní. Flugferðir til Bretlands verði ekki bókanlegar fyrr en varanleg lausn er komin á.
Öllum farþegum verður boðin endurgreiðsla, og þeim sem vilja hjálpað að komast á áfangastað erlendis eða heim aftur.
„Eftir því sem næst verður komist felst vandinn m.a. í því að Ísland er með tvíhliða samning við Bretland um flugþjónustu og Bretland er með sams konar samning við Evrópusambandið. Þessir tveir samningar skarast í Bretlandi. Vandamálið byrjar þegar flytja á farþega frá Bretlandi til Íslands af flugrekanda með heimilisfesti í Evrópusambandinu (en ekki í Bretlandi eða á Íslandi),“ segir í tilkynningunni.
Um sjötíu farþegar sem áttu bókað flug með Niceair til London í gær þurftu að bíða lengi án upplýsinga á Akureyrarflugvelli í gær.
„Starfsfólk Niceair hefur unnið þrekvirki í að koma öllum farþegum sem bókaðir voru og þáðu hjálp áfram á áfangastað eftir öðrum leiðum, en við urðum að grípa til þess óyndisúrræðis að aflýsa flugum út júní. Þetta gerum við í varúðarskyni, en við vonumst vitanlega til þess að leysa þessi mál innan þess tíma.Við höfum notið góðrar hjálpar íslenskra stjórnvalda, Utanríkisráðuneytis og Samgöngustofu, auk þess sem breska sendiráðið hafði góða aðkomu að málinu.Ég harma að hafa valdið röskun á högum fólks sem sannarlega ætlar sér að styðja við bakið á okkur en hér lendum við í aðstæðum sem rekja má til Brexit og flækjustigs alþjóðasamninga sem aðild eiga að þrjú þjóðríki og tvö viðskiptabandalög. Við þurftum að koma þessum tíðindum sem fyrst til sem flestra og því var send út fréttatilkynning um hádegisbil. Ekki var búið að senda aflýsingu á flugi á mánudag til farþega og eru einhverjir ósáttir við það, sem ég skil vel, en þetta var mat okkar að ná til sem flestra fyrst. Að öllu öðru leyti hefur gengið mjög vel þessa fyrstu viku. Flug til Kaupmannahafnar og Tenerife hafa gengið mjög vel og er bókunarstaða góð út sumarið,“ segir Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson í Facebook færslu um málið sem má lesa í heild hér að neðan.
UMMÆLI