MAK
Leyni
Höldur
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Fréttir

Nettó veitir Velferðarþjónustu kirkjunnar á Húsavík jólastyrk

Eftir Ingólfur Stefánsson·
Skärmavbild 2022-12-23 kl. 10.54.58
kaffid.is

Helga Kristjana Geirsdóttir verslunarstjóri Nettó á Húsavík afhenti í gær Sr. Sólveigu Höllu Kristjánsdóttur jólastyrk fyrir hönd Nettó. Styrkurinn, sem er formi inneignakorta, fer til Velferðarþjónustu kirkjunnar á Húsavík. Nettó hefur um árabil séð um úthlutun styrkja í aðdraganda jóla og leggur mikla áherslu á að styðja við og taka þátt í nærsamfélaginu á hverjum stað með þessum hætti en verslanirnar eru staðsettar víðsvegar um landið.

„Við finnum sterkt fyrir því að svona styrkir skipta gífurlegu máli. Nettó hafa lagt ríka áherslu á að leggja sitt á vogarskálarnar til að styðja við þau sem á þurfa að halda í kringum hátíðarnar um allt land. Það er okkur sannur heiður að fá að styðja við Velferðarþjónustuna kirkjunnar hér á Húsavík og við vonum innilega að kortin komin til með að nýtast vel,“ segir Helga Kristjana.  

Auk Velferðarþjónustu kirkjunnar á Húsavík hlutu Mæðrastyrksnefnd, Fjölskylduhjálp Íslands og Hjálparstarf Kirkjunnar, Mataraðstoð/Matargjafir Akureyri og nágrennis, Velferðarsjóður Suðurnesja, Rauði Krossinn á Egilsstöðum, Samfélagssjóðurinn á Höfn, Sjóðurinn góði, Matargjafir á Ísafirði, og Borgarneskirkja styrki í ár. 

Tengdar greinar

Uppfært: 25. apríl 2026