Nesbræður hefja jarðvegsskipti á nýjum velli á ÞórssvæðinuMynd/Nesbræður

Nesbræður hefja jarðvegsskipti á nýjum velli á Þórssvæðinu

Verkið felur í sér að taka ofan af núverandi gras, fjarlægja lífrænan jarðveg (mold og fleira) og setja möl sem grunn undir nýjan völl. Ofan á þann grunn fer svo annað eins lag af möl til að fergja völlin. Fargið er svo látið liggja á vellinum fram á vorið 2025 þegar við keyrum því í burtu. Þetta kemur fram á Facebook-síðu Nesbræðra. Einnig segir þar:

Vegna þessara framkvæmda munu stór ökutæki vera á ferðinni í Skarðshlíðinni. Bílstjórar munu ávalt fara að öllu með gát en við biðjum vegfarendur við Bogann að horfa vel í kringum sig og sýna okkur biðlund ef vörubílar og önnur tæki eru að hægja á umferðinni.

Vinna hefst flesta daga rúmlega átta (eftir að skólar eru byrjaðir) svo börn á leið í skólann ættu öll að vera komin sína leið þegar við byrjum. En eftir kl. 16:00 erum við enn að svo þegar æfingarumferðin er hvað mest eru ökutæki einnig á ferðinni frá okkur.

– Rauð lína á myndinni merkir vinnusvæðið. Það hefur verið girt af með girðingum.

– Ekki er heimilt að leggja bílum við austurhlið Bogans, innan vinnusvæðiðst en neyðarbifreiðar hafa ávalt aðgang að þessari aðkomu.

– Gul lína á myndinni merkir akstursleið tækjanna til og frá vinnusvæðinu

Frábært væri ef foreldrar/forráðamenn myndu upplýsa börnin sín um þessar framkvæmdir líka og biðja þau um að vera ekki við svæðið þegar verið er að vinna og hafa augu og eyru opin þegar þau eru að þvera Skarðshlíðina.

Sambíó

UMMÆLI

Sambíó