Nemar frá Tónak stýra Sinfóníuhljómsveit Íslands
Eftir Hákon Orri Gunnarsson·

Sinfóníuhljómsveit Íslands stendur á hverju ári fyrir hljómsveitarstjóraakademíu þar sem tónlistarnemum gefst kostur á að nema undir handleiðslu eins af hljómsveitarstjórum hljómsveitarinnar og fá að prófa að stjórna sinfóníuhljómsveitinni og að þessu sinni var Daníel Bjarnason leiðbeinandi í akademíunni. Nokkrum nemendum er svo boðið að stjórna SÍ á hádegistónleikum.
Í tilkynningu frá Tónlistarskólanum á Akureyri kemur fram að einn af núverandi nemendum skólans tók þátt og einn fyrrverandi, þau Lára Rún Keel Kristjánsdóttir sem lærir á trompet hjá Tónak og Ýmir Haukur Guðjónsson sem útskrifaðist með framhaldspróf árið 2024. Þau fengu svo bæði að stíga á stjórnendapall á lokatónleikunum.
Tengdar greinar
Uppfært: 6. september 2026










