Píeta

Nafnasamkeppni um nýtt stjórnsýsluhús ÞingeyjarsveitarLjósmynd: Þingeyjarsveit

Nafnasamkeppni um nýtt stjórnsýsluhús Þingeyjarsveitar

Nýtt stjórnsýsluhús verður tekið í notkun næsta haust á Laugum en húsið hýsti áður Litlulaugaskóla og Seiglu. Húsinu vantar hins vegar nafn og því hefur Þingeyjarsveit efnt til nafnasamkeppni.

Í húsinu verður stjórnsýsla sveitarfélagsins, að mestu, en auk þess verða leigð út skrifborð og rými sem fyrirtæki, stofnanir og einyrkjar geta nýtt sér. Vonast er til þess að húsið verði iðandi af lífi, suðupottur hugmynda og verkefna þar sem allir eru velkomnir.

Frestur til að senda inn tillögu í samkeppni um nafn á stjórnsýsluhúsið er til og með 15. ágúst nk og verður nafnið tilkynnt við opnun húsnæðisins.

Hægt er að senda inn tillögu á vef Þingeyjarsveitar.

UMMÆLI

Sambíó