Nafn mannsins sem lést í Laxá í Aðaldal
Eftir Jónatan Friðriksson·

Maðurinn sem lést í Laxá í Aðaldal í nótt hét Árni Björn Jónasson. Hann var 73 ára verkfræðingur og búsettur í Kópavogi.
Árni Björn lætur eftir sig eiginkonuna Guðrúnu Ragnarsdóttur framhaldsskólakennara, þrjú börn og sex barnabörn.
Fjölskylda Árna vill koma á framfæri sérstökum þökkum til veiðifélaga hans, björgunarsveita, lögreglunni og Landhelgisgæslunni.
Tengdar greinar
Uppfært: 24. apríl 2026










