N1 stelpumótið haldið í annað sinn

N1 stelpumótið verður haldið í annað sinn á Akureyri dagana 7.–9. ágúst. Í tilkynningu á vef Akureyrarbæjar segir að mótið marki áframhaldandi uppbyggingu á öflugum vettvangi fyrir ungar knattspyrnustúlkur víðs vegar að af landinu.
„Vegna mótsins verður óhjákvæmilega nokkur röskun á umferð ökutækja um bæinn. Dalsbraut verður lokuð í aðra áttina frá gatnamótum við Þingvallastræti að hringtorgi við Skógarlund til að nýta megi hluta götunnar sem bílastæði þá daga sem mótið stendur, eða frá kl. 10 föstudaginn 7. ágúst til kl. 16 sunnudaginn 9. ágúst.Munið að það er frítt í strætó á Akureyri,“ segir í tilkynningu bæjarins.
Líkt og á N1 mótinu í júlí mun Akureyri taka á móti þúsundum gesta vegna mótsins, en gert er ráð fyrir nálægt 3000 gestum í heildina á svæðinu. Fjölskyldur keppenda koma víðs vegar að af landinu og nýta gjarnan tækifærið til að dvelja á Akureyri og kynnast bænum og Norðurlandi.
Nánari upplýsingar um mótið er hér.

Tengdar greinar
Uppfært: 6. september 2026










