MAK
Leyni
Höldur
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Íþróttir

N1 mótið haldið í fertugasta sinn

Eftir Ingólfur Stefánsson·
Screenshot-2026-07-01-at-13.43.32
Mynd af heimasíðu N1 mótsins· kaffid.is

N1 mótið verður haldið í fertugasta sinn á Akureyri dagana 1.-4. júlí. Á sama tíma fer Pollamótið fram á íþróttasvæði Þórs.

Vegna þessara stórviðburða verður óhjákvæmilega nokkur röskun á umferð ökutækja um bæinn og verða ákveðnar götulokanir eða lokanir á akreinum í gildi meðan á þeim stendur. Nánari upplýsingar um það má sjá á kortunum að neðan. Þetta kemur fram á vef Akureyrarbæjar í dag.

„Bæði mótin hafa fest sig rækilega í sessi og er N1 mótið eitt stærsta fótboltamót sumarsins á Íslandi. Þá streyma til bæjarins krakkar og fjölskyldur þeirra alls staðar af landinu til að keppa fyrir sín lið. Frá því að fyrsta mótið fór fram 1987 hafa tugþúsundir barna komið saman á Akureyri, keppt fyrir sitt félag, eignast vini og skapað minningar sem margir búa að alla ævi,“ segir í tilkynningu á vef Akureyrarbæjar.

Skarðshlíð verður einstefnugata til austurs og suðausturs 3. og 4. júlí, eða föstudag og laugardag, vegna Pollamótsins og bílastæðum verður fjölgað. Munið að það er frítt í strætó á Akureyri.

Skarðshlíð verður einstefna vegna Pollamóts

Skarðshlíð verður einstefnugata vegna Pollamóts

Skarðshlíð verður einstefnugata vegna Pollamóts

Þingvallastræti verður að hluta ein akrein í hvora átt 1.-4. júlí og bílastæðum fjölgað þar meðfram og víðar í nágrenninu. Munið að það er frítt í strætó á Akureyri.

Bílastæði og breytingar á akreinum vegna N1 mótsins

Breytingar á akreinum og bílastæðum í tengslum við N1 mótið.

Breytingar á akreinum og bílastæðum í tengslum við N1 mótið.

Tengdar greinar

Uppfært: 6. september 2026