N1-mótið í knattspyrnu mun fara fram á Akureyri í sumar. Mótið er haldið fyrir 5. flokk karla í knattspyrnu. Þetta kemur fram á mbl.is.
Sævar Pétursson, framkvæmdastjóri KA, segir að á morgun verði gefin út áætlun um skipulagið á mótinu en ljóst verði að mótið verði á sínum stað.
N1-mótið fer fram 1.-4. júlí og. Leikið verður á félagssvæði KA og á Akureyrarvellinum og svæðunum skipt upp í hólf, með sérsalernisaðstöðu fyrir hópana. Á síðasta ári tóku 240 lið og 1960 keppendur þátt á mótinu.
UMMÆLI