Myndaveisla: Hátt í 1300 manns í opnunarpartí

Það voru hátt í 1300 manns sem mættu og fögnuðu með Íslenska gámafélaginu í opnunarpartí nýrrar starfsstöðvar síðastliðinn föstudag. Íslenska gámafélagið opnar nýja starfsstöð á Ægisnesi 3 á Akureyri og fyrirtækjum á Norðurlandi var boðið í opnunarpartí. Í tilkynningu frá Íslenska gámafélaginu segir að mætingin hafi farið fram úr björtustu vonum.

Nýju húsakynnunum, sem munu framvegis vinna sorp frá fyrirtækjum og heimilum á Norðurlandi, var breytt í risa skemmtistað. Jón Þórir Frantzson, forstjóri, opnaði veisluna með stuttu ávarpi og Karlakór Akureyrar-Geysir ásamt Lúðrasveit Akureyrar skemmtu gestum.  Síðan stigu á svið margir af stærstu listamönnum þjóðarinnar. Þau Birgitta Haukdal, Emmsjé Gauti, Daníel Ágúst, Úlfur Úlfur og Stuðlabandið skemmtu gestum.

„Norðlendingar kunna að skemmta sér og framreiða glæsilegar veitingar enda var boðið upp á ljúfmeti frá Bautanum og Rub23. Gestir gæddu sér á gómsætum drykkjum ásamt því að Bæjarins bestu voru líka á svæðinu fyrir þá sem vildu eina með öllu.Með opnun Íslenska gámafélagsins stórbætist þjónusta við Norðurland og mun í fyrsta skipti hefjast útflutningur á almennum heimilisúrgangi beint frá Akureyri. Úrgangurinn mun fara til endurvinnslu og orkunýtingar í Evrópu í stað urðunar á Sölvabakka. Af þessu hlýst mikill umhverfislegur ávinningur þar sem orkan er nýtt til kyndingar á heimilum í Evrópu. Á árinu verður einnig ný vinnslulína fyrir gler sett upp á svæðinu þar sem að allt umbúðagler verður meðhöndlað og er það einnigí fyrsta skipti sem slíkt er gert á Norðurlandi,“ segir í tilkynningu.

Hér að neðan má sjá myndir úr partíinu

Vikulegt fréttabréf

Fáðu helstu fréttir vikunnar frá Kaffið.is í tölvupósthólfið.

Vinsamlegast bíddu meðan við skráum þig!

Takk fyrir að skrá þig!