MAK
Leyni
Höldur
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Menning

Múrverk eftir Sigríði Stefaníu Stefánsdóttur sýnd í Deiglunni

Eftir Hákon Orri Gunnarsson·
743186278_3634311150066417_4666787260692719925_n-1
kaffid.is

Opnun sýningarinnar Hringrás lífsins eftir Sigríði Stefaníu Stefánsdóttur verður klukkan 16:00 í Deiglunni í dag 31. júlí.

Opnunartími sýningarinnar er frá kl.16-20 í dag og frá 12-18 laugardag og sunnudag. Á morgun verður hægt að kaupa lífrænan kakóbolla af Agndofa hönnunarhús og einnig verður boðið upp á tónheilun milli kl. 15-16.

„Sýningin er áminning um að fegurð býr ekki aðeins í því sem við horfum á, heldur í því sem vaknar innra með okkur þegar við gefum okkur tíma og athygli. Í gegnum lit, form og nærveru er áhorfandanum boðið að tengjast sinni innri fegurð og leyfa gleðinni og kærleikanum að koma fram á sinn eigin hátt,“ segir um sýninguna í tilkynningu á Facebook.

Sigríður var á listnámsbraut í VMA og lærði einnig leirlist. Þetta er hennar fyrsta einkasýningin.

Tengdar greinar

Uppfært: 6. september 2026