MAK
Leyni
Höldur
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Fréttir

Mótorhjól brann skammt frá Dalvík

Eftir Hákon Orri Gunnarsson·
FB_IMG_1784142045441
Ljósmyndir: Ómar Geirsson· kaffid.is

Ómar Geirsson var á ferð frá Akureyri til Dalvíkur þegar hann varð var við bilun í mótórhjólinu sínu af gerðinni 1500 Goldwing frá árinu 1988. Skömmu síðar kviknaði í hjólinu og brann það til kaldra kola án þess að hægt hefði verið að gera neitt. Þessu var greint frá á vef Bifhjólaklúbbsins Tíunnar. Ómar var nýlega búinn að fjárfesta í hjólinu og var að koma með það úr ástandskoðun áður en óhappið varð. Slökkvilið Dalvíkur mætti á staðinn eftir að hringt var í neyðarlínuna og slökkti eldinn.

Ómar fer yfir söguna á Facebook síðu sinni þar sem segir:

„Erfiður dagur í dag, skrapp með 1500 Goldwing í skoðun á Akureyri og rúntaði eitthvað þar, en á heimleiðinni fór hjólið að verða eitthvað öðruvísi en maður á að venjast og stoppaði ég því þarna á Hámundstaðarhálsi ( fékk að heyra það að ég væri fífl og asni að stoppa þarna og vera í símanum, geðstyrð kona að garga út um gluggann) ég hringdi í kunningja þar sem ég var ekki með nein verkfæri meðferðis (nýbúinn að kaupa þetta hjól) á meðan ég var í símanum byrjaði að rjúka undan hjólinu að aftan og myndir sýna rest. En það kom líka fólk og athugaði með mig og þakka ég því fyrir. En ást og friður.“

Mótorhjól brann skammt frá Dalvík

Tengdar greinar

Uppfært: 6. september 2026