Síðastliðinn föstudag afhentu umsjónarkonur Mömmur og möffins 884 þúsund krónur til Fæðingardeildar Sjúkrahússins á Akureyri. Upphæðin verður notuð til þess að kaupa þráðlausan hjartsláttar-monitor fyrir fæðandi konur.
Anna Sóley Cabrera tók að sér umsjón Mömmur og möffins um verslunarmannahelgina í ár. Í tilkynningu á Facebook-síðu Mömmur og möffins segir að undirbúningur sé þegar hafinn fyrir næstu kökusölu.
UMMÆLI