MAK
Leyni
Höldur
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Fréttir

Mömmu og möffins opna fyrir frjáls framlög til Fæðingardeildar SAk

Eftir María Hjelm·
03.08.2019-ein-med-ollu-mommur-og-muffins-5769
kaffid.is

Mömmur og möffins hafa ákveðið að opna fyrir frjáls framlög til fæðingardeildar SAk. Þetta kemur fram í tilkynningu á Facebook-síðu þeirra.

„Þó að við hittumst ekki í ár langar okkur að gefa þeim sem hafa áhuga, tækifæri til að styðja við það góða málefni sem viðburðurinn hefur ávallt snúist um. Ef þú hefur tök á því og langar að leggja þitt af mörkum verður hver einasta króna innilega vel þegin. Hvort sem framlagið er stórt eða smátt skiptir það máli og hjálpar okkur að styðja við fjölskyldur á einum mikilvægasta tíma lífs þeirra,“ segir í tilkynningunni.

„Takk fyrir allan hlýhuginn, stuðninginn og kærleikann sem þið hafið sýnt Mömmur og möffins í gegnum árin. Við hlökkum til að koma sterk til baka árið 2027 – en þangað til getum við saman haldið áfram að láta gott af okkur leiða,“ segja skipuleggjendur Mömmur og möffins.

Reikningsupplýsingar:
Reikningur: 0162-26-12120
Kennitala: 410810-0270

Tengdar greinar

Uppfært: 6. september 2026