Minni leirsins – Samtal

Elín Berglind Skúladóttir, Begga, opnar sýninguna Minni leirsins – samtal í Deiglunni kl. 14 laugardaginn 8. ágúst og er sýningin aðeins opin þessa einu helgi frá 14 til 17 báða dagana.
Minni leirsins – Samtal
„Þetta er bara leir.“ Þessa setningu segi ég oft við nemendur mína. Það gerist ekkert slæmt þó að útkoman verði ekki eins og við ætluðum. Stundum verða einmitt áhugaverðustu verkin til þegar við sleppum tökunum, leyfum efninu að leiða okkur áfram og tökum óvæntu niðurstöðunum opnum örmum. Sú hugsun hefur orðið grunnurinn að þessari sýningu.
„Minni leirsins – Samtal“ er afrakstur margra mánaða tilrauna með leir, glerunga og önnur efni – efni sem ég safna, blanda og rannsaka. Hvert verk er samtal milli hugmyndar, efnis og elds. Sum urðu nákvæmlega eins og ég sá þau fyrir mér. Önnur urðu eitthvað allt annað.
Áður en leir varð keramik var hann fjall, jökull, á, sjávarbotn og aska. Hann ber í sér sögu sem er eldri en við. Í þessari sýningu reyni ég ekki að segja frá þeirri sögu fyrir hönd efnisins heldur skapa aðstæður þar sem hún getur komið fram.
Undanfarin misseri hef ég rannsakað efni af mikilli forvitni. Ég vinn með íslenskan leir sem ég safna víða um land, en einnig með keyptan leir, glerunga og önnur efni sem ég blanda, prófa og leyfi að mætast. Ég kanna hvernig þau bregðast hvert við öðru við mismunandi hitastig og með ólíkum aðferðum – með pensli, dýfingu eða einfaldlega með höndunum.
Á þessu ári fékk ég tækifæri til að sækja námskeið hjá danska leirlistamanninum Eric Landon (Tortus), sem kenndi mér að nálgast leirinn af mýkt og virðingu, þar sem áhersla var lögð á næmni fyrir efninu, handbragði og tengslum handarinnar við leirinn.
Seinna í sumar tók ég þátt í Leirfirði á Vestfjörðum, samkomu leirlistakvenna þar sem við sóttum íslenskan leir, unnum úr honum og könnuðum eiginleika hans. Við unnum einnig með raku- og microrakubrennslu. Sú reynsla varð vendipunktur og hvatti mig til að beina sjónum enn frekar að íslenskum leir sem efniviði og rannsóknarefni. Ég byrja oft með hugmynd. En hún er aðeins upphafið. Leirinn, glerungarnir og eldurinn verða fljótt þátttakendur í ferlinu. Stundum verður útkoman eins og ég hafði ímyndað mér. Oftar leiðir efnið mig á nýjar og óvæntar slóðir. Þá þarf ég að sleppa tökunum og hlusta. Það er í þessum augnablikum sem mér finnst sköpunin verða mest lifandi.
Verkin í þessari sýningu eru afrakstur þessarar vegferðar. Þau eru ekki aðeins mótuð af höndum mínum heldur einnig af eiginleikum leirsins, efnanna og eldsins. Hvert verk geymir ummerki snertingar, tíma og umbreytingar – því efnið man, og í því felst kannski minni leirsins.
Fyrir mér er opnun ofnsins eitt magnaðasta augnablik sköpunarferlisins. Þar birtast niðurstöður samtals sem hófst löngu áður en verkið fór í eldinn. Stundum staðfestir efnið hugmynd mína, en jafn oft leiðir það mig inn á nýjar og óvæntar slóðir.
Elín Berglind Skúladóttir er myndlistarkennari og leirlistakona með vinnustofu í Þúfu 46, samfélagi listamanna við Gránufélagsgötu á Akureyri. Samhliða kennslu starfar hún við eigin listsköpun og heldur námskeið í leirmótun og leirrennslu fyrir börn og fullorðna í gegnum Samlagið – sköpunarverkstæði.
Undanfarin ár hefur áhugi hennar beinst í auknum mæli að möguleikum leirsins sem skapandi efniviðar. Leirrennsla, micro-raku-brennsla, efnisrannsóknir og tilraunir með glerunga hafa orðið sífellt stærri hluti af listsköpun hennar. Á síðasta ári hóf hún rannsókn á íslenskum leir og náttúrulegum jarðefnum, sem er megininntak sýningarinnar Minni leirsins – Samtal.
Nánari upplýsingar:
Instagram: @rockspringspottery
listkennsla.com
thufa46.com
Tengdar greinar
Uppfært: 6. september 2026










