MAK
Leyni
Höldur
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Fréttir

Millilandaflug frá Akureyri hefur dregið úr svæðisbundnum ójöfnuði

Eftir Ingólfur Stefánsson·
akureyrarflugvöllur
kaffid.is

Beint millilandaflug frá Akureyri hefur haft víðtæk samfélagsleg áhrif á Norður- og Austurland samkvæmt nýrri rannsókn Þórodds Bjarnasonar prófessors í félagsfræði við Háskóla Íslands. Skýrslan Samfélagsleg áhrif millilandaflugs á Norður- og Austurlandi kom út 8. maí 2026. Rannsóknin var unnin í samstarfi Háskóla Íslands og Markaðsstofu Norðurlands með stuðningi Sóknaráætlunar Norðurlands eystra, Sóknaráætlunar Austurlands og Rannsóknasjóðs Háskóla Íslands. Fjallað er um rannsóknina á vef Markaðsstofu Norðurlands.

Í skýrslunni kemur fram að skipulag íslensks millilandaflugs hafi lengi skapað verulegan aðstöðumun milli landshluta. Aðgengi að Keflavíkurflugvelli hafi haft mikil áhrif á möguleika fólks til utanlandsferða, atvinnusóknar og alþjóðlegra tengsla, á meðan íbúar landsbyggðarinnar hafi búið við lakari tengingar og meiri kostnað.

Niðurstöðurnar benda hins vegar til þess að uppbygging millilandaflugs frá Akureyri hafi dregið úr þessum mun á síðustu árum.

Mynd sem sýnir þróun flugs um Akureyrarflugvöll og staðreyndur úr skýrslu Þórodss Bjarnasonar um Samfélagsleg áhrif millialandaflugs á Norður og Austurland

Nánari umfjöllun má finna á vef Markaðsstofu Norðurlands.

Tengdar greinar

Uppfært: 6. september 2026