Mikilvægt að fá læknanema aftur heim – ekki síst á landsbyggðina

Fulltrúar frá Heilbrigðisstofnun Norðurlands (HSN) og Sjúkrahúsinu á Akureyri (SAk) tóku nýverið þátt í heimsókn til læknaháskólans í Martin í Slóvakíu ásamt fulltrúum frá Landspítala háskólasjúkrahúsi, Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins og Þróunarmiðstöð íslenskrar heilsugæslu. Flestir íslenskir læknanemar erlendis stunda nám í Martin.
Guðrún Dóra Clarke, framkvæmdastjóri lækninga á HSN, segir á vef Sjúkrahússins á Akureyri að tilgangur heimsóknarinnar hafi fyrsti og fremst verið að kynna íslenska heilbrigðiskerfið og möguleika læknanema til að koma til Íslands í verknám og störf að loknu grunnnámi í læknisfræði.
„Jafnframt var markmiðið að byggja upp tengsl við læknanema og Læknadeildina í Martin og skapa þannig grundvöll fyrir áframhaldandi samstarfi og upplýsingamiðlun,“ segir Guðrún.
Harpa Snædal, yfirlæknir á SAk, segir að Sjúkrahúsið hafi góða reynslu af því að fá bæði nema og lækna sem eru að taka sín fyrstu skref í faginu til starfa.
„Það var því ánægjulegt að finna að í þessari ferð var mikill áhugi meðal nemenda. Þau fengu kynningu á umsóknarferlinu um sérnámsgrunnsárið á Íslandi, uppbyggingu námsársins og fjölbreytta möguleika á starfsstöðvum. Við lögðum áherslu á að kynna það faglega umhverfi og stuðning sem stendur sérnámsgrunnslæknum til boða og sýna þá möguleika sem það getur skapað fyrir áframhaldandi sérnám,“ segir Harpa.
Reynslan sýnir að langflestir íslenskir læknanemar í Slóvakíu skila sér aftur heim, en sumir ljúka þó hluta af sérnámsgrunnsári (áður kandidatsár) sínu í öðrum löndum.
„HSN og SAk bjóða nemum upp á fjölbreytt verknám undir góðri handleiðslu, en með því að kynnast starfseminni og byggja upp tengsl við starfsfólk og svæðið aukast jafnframt líkurnar á að nemendur snúi aftur að námi loknu eða velji sérnám sem nýtist heilbrigðisþjónustu á landsbyggðinni,“ segir Guðrún Dóra Clarke að lokum.
Tengdar greinar
Uppfært: 17. október 2026





