„Mikill heiður að fá að vera partur að þessari miklu sögu“

Akureyringurinn Ivan Mendez er nýr söngvari þungarokkssveitarinnar Dimmu. Hann segir það vera mikinn heiður að fá að vera partur af sögu hljómsveitarinnar og er spenntur fyrir komandi tímum.
„Við ætlum ekki að gefa neitt eftir, bara full ferð áfram. Það er svo mikil ástríða og gleði í bandinu að það er ekki annað hægt. Aðdáendur mega bara búast við því að sveitin mun halda áfram að gera það sem hún hefur gert frá upphafi, að gefa út góða tónlist og halda flotta tónleika,“ segir Ivan.
Ivan segir að Ingó Geirdal og Silli Geirdal úr Dimmu hafi heyrt og séð það sem hljómsveitin Sólför væri að gera en þar er Ivan einnig söngvari. Hann segir að þeim hafi litist vel á það sem að sveitin væri að gera og svo hafi hann einn daginn fengið símtal frá Ingó.
Sjá einnig: Ivan Mendez nýr söngvari Dimmu
„Hann tjáði mér hver staðan væri, og spurði hvort ég hefði áhuga á að gera tónlist með þeim. Ég var spenntur að fá þetta símtal en ég var líka aðeins á bremsunni því ég veit það að sveitin á marga dygga aðdáendur og þetta er stórt og mikið hlutverk. En eftir að hafa spjallað meira við þá bræður fann ég strax að við áttum vel saman og það sem mikilvægast er, deildum við sterkri ástríðu fyrir því að búa til tónlist.“
Ivan segir að Dimma verði áfram Dimma en að eitthvað muni þó breytast þegar tveir nýir meðlimir koma inn í fjögurra manna hljómsveit.
„Við heiðrum það sem á undan hefur komið en að sama skapi erum við óhræddir við að prófa nýja hluti. Við eltum bara sköpunargleðina og þessa góðu tilfinningu sem kemur yfir mann þegar spennandi hugmyndir fæðast.“
Hann segir að framundan séu upptökur, æfingar og tónleikar. Dimma mun halda tónleika í haust og nú þegar eru komnar miðar í sölu fyrir tónleika á Selfossi, 23. október, í Reykjavík 30. október og svo mætir bandið á Græna Hattinn á Akureyri 7. nóvember næstkomandi.
Ivan segist nú verja mikilli orku og tíma í að undirbúa sig fyrir þessa tónleikaröð. Það sé mikið af efni sem hann vill stimpla inn í höfuðuð á sér.
„Ég er dálítið þrjóskur með það að ég vil helst ekki nota textablöð eða skjái uppi á sviði, mér finnst það eyðileggja tengingu mína við áhorfendur, svo ég er að vinna í því hörðum höndum að leggja alla textana á minnið.“
Ivan hefur líkt og flestir Íslendingar heyrt helstu slagara sveitarinnar þó svo að hann hafi ekki endilega heyrt allar plötur sveitarinnar frá byrjun til enda fyrr en nú.
„Ég hef hins vegar alltaf borið mikla virðingu fyrir hljómsveitinni og þeirra afrekum. Það eru fáar íslenskar rokkhljómsveitir sem hafa átt jafn frjóan, stöðugan og langan feril. Það er meira en að segja það að halda hljómsveit gangandi í 23 ár. Það er mér mikill heiður að fá að vera partur að þessari miklu sögu,“ segir hann.
Hann segist hafa fundið fyrir miklum stuðningi síðan fréttirnar komu fram og sveitin gaf út nýtt lag og myndband.
„Það hefur yljað okkur mjög og við erum afskaplega þakklátir. Svo vonumst við bara til að sjá sem flesta á tónleikum.“
Ivan mun einnig halda áfram að vinna með hljómsveitinni Sólför sem vinnur nú að sinni fyrstu plötu.
„Ég og Sigfús Jónsson vinur minn erum að klára mix og útsetningar, það fer líka mikill tími í það. En þetta er það sem ég elska að gera, svo þetta er allt bara yndislegt,“ segir Ivan að lokum.
Tengdar greinar
Uppfært: 6. september 2026










