MAK
Leyni
Höldur
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Fréttir

Mikill erill hjá lögreglunni á Akureyri – Sérsveitin tók þátt í aðgerð á tónleikasvæðinu

Eftir Ingólfur Stefánsson·
lögreglan
kaffid.is

Mikill erill var hjá lögreglunni á Norðurlandi eystra síðastliðinn sólarhring. Í tilkynningu á samfélagsmiðlum lögreglunnar segir að alls hafi verið skráð 83 mál hjá lögreglunni.

Níu einstaklingar voru handteknir og einn þeirra vistaður í fangageymslu vegna vopnalagabrots á tónleikasvæðinu á Akureyrarvelli, það mál er til rannsóknar.

Andri Freyr Sveinsson, varðstjóri hjá lögreglunni á Akureyri, staðfestir á vef RÚV að sérsveit ríkislögreglustjóra hafi aðstoðað lögreglu í aðgerðinni á Akureyrarvelli í gærkvöld, þar sem tónleikar FM95BLÖ fóru fram.

Níu voru handteknir í fyrstu en átta var sleppt á staðnum. Einn reyndist vera með hníf á sér og var vistaður í fangageymslu í nótt.

Átta mál komu upp vegna ölvunar eða vímuástands og þurftu tveir aðilar að gista í fangageymslu. Fimm mál komu upp þar sem afskipti voru höfð af börnum vegna ástands, barnavernd og foreldrar upplýst. Tíu umferðarlagabrot eru skráð sl. sólarhing hjá lögreglu ekkert tilfelli kom upp þar sem grunur var um akstur undir áhrifum vímugjafa. Ein líkamsárás var tilkynnt og er það mál til rannsóknar.

Fjórir einstaklingar handteknir vegna fíkniefnalagabrots, einn þeirra vistaður í fangageymslu og málið til rannsóknar.

Tengdar greinar

Uppfært: 6. september 2026