MAK
Leyni
Höldur
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Menning

Miðaldadagar á Gásum haldnir 18.-19. júlí

Eftir María Hjelm·
514344379_1153549280140155_6241269171318297900_n-1
Mynd: Hrefna Harðardóttir· kaffid.is

Líf og starf fólks í Gásakaupstað miðalda er endurvakið á Miðaldadögum sem haldnir eru um miðjan júlí ár hvert. Í ár verða þeir haldnir dagana 18. og 19. júlí.

Hvergi á Íslandi eru varðveittar jafnmiklar mannvistarleifar frá verslunarstað frá miðöldum. Gásir voru helsti verslunarstaður á Norðurlandi á miðöldum og er staðarins víða getið í fornritum frá 13. og 14. öld.

Dagskrá Miðaldadaga 2026:

11:00 – 16:00 Kaupmenn selja varning sinn og vinna að handverki.

12:00 – 16:00 Þorir þú á hestbak? Teymt undir börnum.

11:00 – 16:00 Getur þú skotið af boga? Hægt að spreyta sig í bogfimi. 4 örvar á 1.000 krónur.

11:00 Kaupstaður opnar

12:00 Lifandi leiðsögn um fornleifasvæðið. Leiðsögumaður: Níels Ómarsson

13:00 Tóvinna á miðöldum – erindi

14:00 Skylmingar og slagsmál – erindi

15:00 Leiðsögn um fornleifasvæðið. Leiðsögumaður: Níels Ómarsson

16:00 Skylmingar og slagsmál – erindi

17:00 Kaupstaður lokar

Annað sem verður um að vera á svæðinu er eldsmíði, jurtalitun, knattleikur, vattarsaumur, hringdans, matargerð, leikþáttur, bandvefnaður, tálgun og smjörgerð.

Gásir eru við Hörgárósa í Eyjafirði, 11 km norðan við Akureyri. Þegar ekið er frá Akureyri til norðurs eftir þjóðvegi 1, líkt og stefnan sé tekin til Reykjavíkur, er beygt til hægri eftir 4 km, inn á veg númer 816, eftir honum er ekið u.þ.b. 6 km eða þangað ekið er inn á bílastæðið við Gása.

Ókeypis aðgangur. Dagskrá getur tekið breytingum.

Tengdar greinar

Uppfært: 6. september 2026