Mexíkósku landsliðskonurnar Sanda Mayor og Bianca Sierrra sem leikið hafa með Þór/KA í Pepsi deild kvenna síðustu ár framlengdu samninga sína við félagið í dag.
Sandra og Bianca hafa verið með betri leikmönnum liðsins, en Sandra hefur skorað 55 mörk í 64 leikjum fyrir liðið og Bianca hefur leikið 42 leiki í vörninni.
Þá hefur einnig verið staðfest að þjálfari liðsins, Halldór Jón Sigurðsson, mun halda áfram með liðið næsta sumar.
Í Þór/KA fréttum er þetta helst. Fany og Bianca skutust „heim“ til að undirrita nýja samninga. #ÞórKA #fotboltinet #MexicanPower
This just in, @StefMayor & @Bfromthe_BAYY are back „home“ for a few days to sign new contracts. Excellent! pic.twitter.com/BGu7lLMxEZ
— Þór/KA (@thorkastelpur) October 29, 2018
UMMÆLI