MAK
Leyni
Höldur
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Íþróttir

Metþátttaka í Akureyrarhlaupi atNorth

Eftir María Hjelm·
fjolskylda
Mynd: Barði Westin· kaffid.is

300 hlauparar þeystu um götur Akureyrar í gær í Akureyrarhlaupi atNorth en það er aukning frá síðasta ári sem einnig var metár. Að venju var boðið upp á þrjár vegalengdir hálfmaraþon, 10 km og 5 km. Flestir keppendur voru í 5 km 144 hlauparar, 115 hlupu 10 km og 33 hálfmarþon sem var jafnframt Íslandsmeistaramót í greininni.

atNorth styrkir hlaupið og í ár bættist sú nýjung við að það fyrirtæki sem átti flesta hlaupara gat valið góðgerðarsamtök til að styrkja í boði atNorth. Sjá mátti starfsmannahópa á hlaupum, svo sem slökkviliðið í fullum herklæðum en það var starfsfólk SAK sem hneppti góðgerðarhnossið að þessu sinni.

Í hálfmaraþoni sigraði Arnar Pétursson í karlaflokki á 1:08:12 sem sem er 10 sekúndna bæting á brautarmeti hans frá 2023 og fór hann því heim 75.000 kr ríkari í boði T+. Annar var Thijs Kreukels á 1:16:55 og þriðji Sölvi Sturluson á 1:19:43.

Sigurvegari í kvennaflokki var Íris Anna Skúladóttir á 1:20:40, önnur var heimakonan Sigþóra Brynja Kristjánsdóttir á 1:21.55 og þriðja var Íris Dóra Snorradóttir úr FH á 1:22:11.

Í 10 km hlaupi var Katla Rut Róbertsdóttir Kluvers fyrst kvenna á 39:05, önnur var Helga Guðný Elíasdóttir á 39:30 og þriðja Auður Ómarsdóttir á 40:18. Í karlaflokki var Jón Kristófer Sturluson fyrstur á 33:58, Pétur Haukur Jóhannesson annar á 34:51 og Sigurgísli Gíslason þriðju á 35:09.

Í 5 km hlaupi sigraði Gunnar Andri Pétursson karlaflokkinn á 18:05. Magnús Helgi Sigurðsson var annar á 18:45 og Frey Eduardo þriðji á 18:49. Anna Berglin Pálmadóttir sigraði kvennaflokkinn á 19:29, önnur var Fanney Rún Stefánsdóttir á 19:57 og Rannveig Oddsdóttir þriðja á 20:23.

Tíma allra sem hlupu má finna hér: https://timataka.net/akureyrarhlaup2026/

Tengdar greinar

Uppfært: 6. september 2026