Akureyrarbær þarf að hlúa að menningarlífi með stöðugri uppbyggingu, öflugri grasrót, listnámi og endurnýjaðri menningarstefnu.
Stofnun Listasafnsins á Akureyri árið 1993 var mikilvægt skref í sögu bæjarins og sýndi metnað og framsýni í menningarmálum. Opnun menningarhússins Hofs og vel heppnuð stækkun listasafnsins á Akureyri sýndi enn fremur að Akureyri vill vera miðstöð lista og menningar á landsbyggðinni. Við erum lánsöm að hér starfar fjöldi listafólks sem við getum verið afar stolt af og margir frábærir listamenn eiga rætur að rekja til bæjarins.
Öflugt menningarlíf verður ekki til af sjálfu sér. Það krefst markvissrar stefnu, aðstöðu sem hentar ólíkum greinum lista og raunverulegs vilja til að styðja við frumkvæði, tilraunastarf og skapandi kraft. Ef Akureyri ætlar að vera leiðandi menningarbær þarf ekki aðeins að standa vörð um þær stofnanir sem þegar hafa sannað gildi sitt, heldur líka að hlúa betur að þeim jarðvegi sem allt menningarlíf sprettur úr. Grasrótin er grundvöllur öflugs menningarlífs. Með því að næra hana og skapa henni rými er lagður grunnur að öflugu menningarlífi þar sem hugmyndir kvikna, ungt listafólk fær tækifæri til að vaxa og samfélagið allt nýtur ávinningsins.
Rannsóknir hafa sýnt að listir hafa skýr hagræn áhrif, skapa störf og tekjur, styrkja ferðaþjónustu og verslun og auka aðdráttarafl samfélaga. Fjölmargir bæjarbúar hafa atvinnu af menningu. Fjárfesting í menningu er því ekki munaður heldur skynsamleg samfélagsleg og efnahagsleg fjárfesting. Hún styrkir sjálfsmynd okkar, eykur lífsgæði og gerir Akureyri að eftirsóknarverðum bæ.
Í framhaldsskólum bæjarins er boðið upp á nám við listnámsbraut og sviðslistabraut. Leikfélag Akureyrar hefur boðið upp á leiklistarnám með góðum árangri. Tónlistarskólinn á Akureyri býður upp á frábært tónlistarnám og Tónræktin er afar dýrmætur vettvangur til náms og sköpunar. Allt er þetta starf ýmist stutt af eða rekið af sveitarfélaginu eða ríkinu. Það sem helst skortir í okkar góða bæ, er stuðningur við aðila sem halda úti myndlistarnámi fyrir börn og ungmenni. Það er nauðsynlegt, til að menningin haldi áfram að blómstra. Á Akureyri starfa tveir flottir einkareknir dansskólar. Starf þeirra og vinsældir bera vitni um mikilvægi dansins í menningarlífi bæjarins. Mikilvægt er að sveitarfélagið styðji starfsemi þeirra.
Menningarstefna Akureyrarbæjar rann út árið 2018 og því löngu tímabært að móta nýja og metnaðarfulla stefnu. Öflugt menningarlíf og safnastarf gerir Akureyri að eftirsóknarverðum bæ, eykur lífsgæði íbúa og styrkir bæði atvinnulíf og ferðaþjónustu. Því þarf bæjarfélagið að setja skýra menningarstefnu með öflugum stuðningi við grasrót og raunverulegri fjárfestingu. Við í Vinstri grænum á Akureyri viljum beita okkur fyrir því, með sérstakri áherslu á listnám barna og ungmenna og jafnan aðgang að menningarlífi.
Jana Salóme Ingibjargar Jósepsdóttir er oddviti Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs á Akureyri.










