Menningarsúpan snýr aftur eftir hlé

Fyrsti viðburður Menningarsúpunnar eftir hlé fer fram mánudaginn 28. september klukkan 12:00 til 13:00 á Ketilkaffi. Menningarsúpan er óformlegur mánaðarlegur hittingur fyrir fólk sem hefur áhuga á menningu og menningarlífi á Akureyri og í nágrenni. Markmið hittinganna er að leiða saman listafólk, skipuleggjendur og almenning til að deila hugmyndum, ræða málefni líðandi stundar og efla staðbundið menningarlíf. Á dagskrá er kynning frá fulltrúum SSNE á framtíðaráformum í menningarstarfi samtakanna ásamt því segir í tilkynningu á vef Listasafnsins „Við ræðum það sem er á döfinni, deilum hugmyndum og reynslu, kynnumst því sem aðrir eru að gera og spáum í hvernig við getum styrkt og auðgað menningarlífið á svæðinu.“
Viðburðurinn er öllum opinn þó er mælst er til þess að gestir skrái þátttöku sína á Facebook-síðu Menningarsúpunnar til að auðvelda Ketilkaffi að áætla þann fjölda sem gæðir sér á súpu.
Nánar á vef Listasafnsins.
Tengdar greinar
Uppfært: 16. september 2026










