Í meistaraverkefni sínu við Auðlindadeild Háskólans á Akureyri rannsakaði Radek B. Dudziak niðurbrot á plasti með örverum úr íslenskum jarðvegi. Á vef HA kemur fram að helstu niðurstöður rannsóknarinnar gætu haft víðtæk áhrif og hafa vakið athygli innanlands og á alþjóðavísu enda notkun örvera í niðurbroti á plasti talin ein af mikilvægustu lausnunum við ört vaxandi plastmengunarvanda heimsins. Nýjustu niðurstöður verkefnisins bárust vorið 2025 og hafa verið samþykktar til birtingar í alþjóðlega vísindatímaritinu Frontiers sem er stórt skref hvað varðar alþjóðlega viðurkenningu á niðurstöðunum.
Rannsóknin hófst með söfnun örvera í nágrenni háskólans sem síðan voru ræktaðar í sérstöku æti til að greina getu þeirra til plastniðurbrots. Verkefnið var unnið í samstarfi við innlenda og erlenda sérfræðinga, en með styrk frá COST-samstarfsnetinu PurpleGain stundaði Radek rannsóknir við Centro de Astrobiología í Madríd. Þar staðfestu DNA-greiningar og rafeindasmásjárskoðanir niðurbrot plastsins og leiddu einnig til uppgötvunar á áður óþekktu próteini sem verður rannsakað nánar á næstunni.
Radek, sem fluttist til Íslands frá Póllandi árið 2001, hefur lokið öllu sínu háskólanámi hérlendis samhliða starfi. Þótt hann starfi nú hjá Heilbrigðiseftirlitinu vonar hann að halda rannsóknum sínum áfram á þessu sviði ef tækifæri gefst. Framhald verkefnisins og frekara samstarf við rannsóknastofur í Barcelona og Madríd veltur á fjármögnun og viðtökum vísindasamfélagsins greininni.
Lesa má nánar á vef HA.










