Meistaramót Íslands í frjálsum íþróttum mun fara fram á Þórssvæðinu á Akureyri um næstu helgi þrátt fyrir að keppandi á móti 15-22 ára í Kaplakrika um síðustu helgi hafi greinst með Covid-19 smit. Þetta kemur fram á vef Kjarnans í dag.
Sjá einnig: Meistaramót Íslands fært til Akureyrar
Á vef Kjarnans segir að um 30 manns hafa verið sendir í sóttkví vegna smitsins. Að minnsta kosti hluti af þeim eru keppendur á mótinu, samkvæmt upplýsingum frá Frjálsíþróttasambandi Íslands.
Mótið á Akureyri er í flokki fullorðinna og eru engin áform um að aflýsa því þrátt fyrir smitið. Frjálsíþróttasamband er í góðu samstarfi við Almannavarnir og embætti landlæknis og nú er unnið að því að auka gæslu varðandi smitvarnir.