Marta stekkur inn fyrir Maríu

Marta stekkur inn fyrir Maríu

Marta Nordal, leikhússtjóri Leikfélags Akureyrar og leikstjóri Skugga Sveins, mun stökkva inn í hlutverk Ögmundar í Skugga Sveini í fjarveru Maríu Pálsdóttur 22. og 23. apríl.

Marta segist spennt að leika Ögmund. „Mitt markmið verður að muna textann og rekast ekki í húsgögnin enda hef ég ekki stigið á sviðið í 15 ár,“ segir Marta.

Sýningum á Skugga Svein lýkur í apríl.

Sambíó
Sambíó