Pastelrit númer 41 og 42 koma út á sumardaginn fyrsta, 23. apríl næstkomandi. Mars Baldur og Hildur Eir Bolladóttir eru höfundar verkanna sem eru nú farin í prentun.
Pastelrit númer 41 er Hamingja eftir Mars Baldur. Pastelrit númer tvö er smásagan Prestur fer á stefnumót eftir Hildi Eir. „Þetta er grátbrosleg saga af dulítið sérstöku stefnumóti, svo ekki sé nú meira sagt,“ skrifar Hildur Eir um verkið á samfélagsmiðlum sínum.
Auglýsing - Vilt þú auglýsa hér?
Pastel eru listaverk í ritaformi. Hvert rit er frumútgáfa gefin út í 100 tölusettum og árituðum eintökum eftir listafólk á Íslandi. Útgáfuhóf fyrir verk 41 og 42 verður haldið á sumardaginn fyrsta.










