MAK
Leyni
Höldur
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Íþróttir

Markvörður Þórs skoraði í jafntefli gegn KR

Eftir Ingólfur Stefánsson·
image
Mynd: Fótbolti.net – Sævar Geir Sigurjónsson· kaffid.is

Þórsarar tóku á móti KR-ingum í Bestu deild karla í knattspyrnu á Akureyri í gær. Þórsarar byrjuðu leikinn vel og komust snemma í 3-0, þriðja mark Þórsara gerði markvörður liðsins, Aron Birkir Stefánsson, frá eigin vallarhelmingi. Markið má sjá neðar í greininni.

Leiknum lauk með 3-3 jafntefli og Þórsarar því áfram í næstneðsta sæti deildarinnar með 8 stig. KA menn sem eru einu sæti ofar töpuðu svekkjandi á móti Víking Reykjavík, 3-2, í gær.

„Ég sá að boltinn var á fínum stað til að prófa þetta með vindinum. Ég bara tók sénsinn. Það er skrítin tilfinning að hafa skorað, þetta var lélegt fagn en tilfinningin skemmtileg,“ sagði Aron Birkir í viðtali við Fótbolta.net eftir leik, viðtalið má sjá í heild hér.

Mark Arons er fyrsta mark markvarðar í efstu deild frá 2010 og aðeins það fjórða í sögunni.

https://www.facebook.com/plugins/video.php?height=476&href=https%3A%2F%2Fwww.facebook.com%2Freel%2F1024818839922669%2F&show_text=false&width=267&t=0

Tengdar greinar

Uppfært: 6. september 2026