Markús Máni skrifar undir nýjan samning hjá KA

Markús Máni skrifar undir nýjan samning hjá KA

Knattspyrnumaðurinn Markús Máni Pétursson hefur skrifað undir nýjan samning við knattspyrnudeild KA sem gildir út árið 2027. Markús er 18 ára miðvörður sem kemur úr yngri fokkum KA. Greint er frá þessu á vef KA í dag.

„Gríðarlega efnilegur og spennandi leikmaður sem er að koma uppúr yngriflokkunum og verður gaman að fylgjast með honum taka næstu skref. Markús Máni átti frábært tímabil á nýliðnu ári en hann var vaxandi og átti margar góðar frammistöður er 2. flokkur gerði sér lítið fyrir og tryggði sér Íslandsmeistaratitilinn. Hann er mikill íþróttamaður, hann er sterkur í návígjum, með góðan stökkkraft og fljótur. Þá er hann einnig mikill liðsmaður sem gefur alltaf allt í leikinn,“ segir í tilkynningu KA.

Sambíó

UMMÆLI

Sambíó