Heilbrigðisstofnun Norðurlands (HSN) hækkaði í öllum flokkum á milli ára í Stofnun ársins, en könnunin metur stjórnun, starfsanda, launakjör, vinnuskilyrði, sveigjanleika í vinnu, sjálfstæði í starfi, ímynd stofnunar, ánægju og stolt, og jafnrétti.
Í síðustu viku voru birtar niðurstöður úr könnuninni Stofnun ársins 2024, en þær veita bæði upplýsingar um starfsumhverfi vinnustaða og samanburð við aðrar opinberar stofnanir. Um 35.000 manns svaraði könnuninni.
„Hjá HSN höfum við undanfarið unnið markvisst að umbótum í stjórnun og starfsumhverfi okkar. Við erum með metnaðarfulla stjórnendafræðslu og stuðning við stjórnendur. Við gerum reglulegar viðhorfskannanir á meðal starfsfólks og nýtum þær markvisst til úrbóta. Þá vann starfsfólk HSN að stefnumótun stofnunarinnar til næstu ára, sem færði mikilvæg og fjölbreytt sjónarmið og hugmyndir upp á borðið um hvernig við getum bætt þjónustu við íbúa, starfsaðstæður og starfsánægju.“, segir Hildur Ösp Gylfadóttir framkvæmdastjóri mannauðs, á vef HSN.
„Þá höfum við líka eflt sýnileika okkar og aukið við fjölda frétta af starfsfólkinu okkar og þeim mikilvægu verkefnum sem þau sinna á hinum ýmsu starfstöðvum HSN. Nýtt húsnæði heilsugæslu HSN á Akureyri hefur skipt sköpum fyrir aðbúnað hluta starfsfólks sem og skjólstæðinga. Við höfum verið að taka skref til innleiðingar á teymisvinnu og heilsueflandi vinnustaðar og við viljum taka fleiri örugg skref þar.“, segir Jón Helgi Björnsson, forstjóri HSN, á vef HSN.
Hildur Ösp og Jón Helgi eru sammála um að HSN sé fyrst og fremst heppið með starfsfólk. Hvert sem í horn er litið er kraftmikið og jákvætt fólk sem vinnur af heilindum sem skilar okkur betri vinnustað. Fyrir það erum við mjög þakklát.