María Guðmundsdóttir Toney er látin
Eftir Ingólfur Stefánsson·

María Guðmundsdóttir Toney er látin eftir baráttu sína við veikindi. María lést 2. september síðastliðinn. Hún var 29 ára gömul. Greint var frá andláti hennar á vef RÚV.
María greindist með sjaldgæft krabbamein í milta í kringum áramót. Hún verður jarðsungin frá Akureyrarkirkju föstudaginn 16. september klukkan 13.
Tengdar greinar
Uppfært: 25. apríl 2026










