Margslunginn einfaldleiki á Húsavík

Sýningin Margslunginn einfaldleiki opnar í Safnahúsinu á Húsavík klukkan átta í kvöld. Sýningin er samstarf Könnunarsafnsins og Menningarmiðstöðvar Þingeyinga. Þar tala saman verk tveggja merkra listamanna og vina, Tryggva Ólafssonar og Thors Vilhjálmssonar, sem báðir áttu sterka tengingu við Húsavík.

Tryggvi var einn af virtustu myndlistarmönnum þjóðarinnar og sýndi verk sín víða um heim. Thor var meðal áhrifamestu rithöfunda landsins og hlaut meðal annars bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs, auk þess að fást við myndlist og teikningu. Þeir tengdust sterkum böndum í listsköpun og samræðu. Thor skrifaði fjölda texta um myndlist og fjallaði meðal annars oft um verk Tryggva, þá skreyttu þeir einnig bækur hvors annars með textum og myndum.

Heiti sýningarinnar, Margslunginn einfaldleiki, er sótt í skrif Thors um list Tryggva og endurspeglar þá sérstöku nálgun sem einkenndi verk hans.

Opnunin hefst eins og áður sagði klukkan 8 í kvöld og er aðgangur ókeypis. Söngkonan Arndís Inga Árnadóttir mun ásamt Hilmari Þór bróður sínum flytja nokkur lög við opnunina, auk þess sem þeir bræður Guðmundur Andri og Örnólfur Thorssynir munu halda stutt ávörp.  Sýningarstjóri er Örlygur Hnefill Örlygsson. 

Sýningin verður opin um páskana og tilvalið að fá sér bíltúr til Húsavíkur.

Vikulegt fréttabréf

Fáðu helstu fréttir vikunnar frá Kaffið.is í tölvupósthólfið.

Vinsamlegast bíddu meðan við skráum þig!

Takk fyrir að skrá þig!