Málefnasamningur nýs meirihluta í bæjarstjórn Akureyrarbæjar

Nýr meirihluti Sjálfstæðisflokks, L-lista og Framsóknar kynnti málefnasamning sinn í flugstöðinni á Akureyri í gær. Samningurinn hefur nú verið birtur á vef Akureyrarbæjar.
Í formála að samningnum segir:
Málefnasamningur Sjálfstæðisflokks, L-lista og Framsóknar leggur grunn að ábyrgri og framsækinni uppbyggingu Akureyrarbæjar.
Við ætlum að styrkja atvinnulíf, bæta þjónustu og einfalda stjórnsýslu, ásamt því að gæta aðhalds í fjármálum.
Sérstök áhersla verður lögð á húsnæðismál, skipulag, samgöngur og umhverfi, auk þess sem við ætlum að efla menningarstarf, íþróttir og tómstundir.
Við viljum bæta lífsgæði eldri borgara, styrkja velferð barna og byggja upp hindrunarlaust samfélag.
Þá verður hagsmunagæsla Akureyrarbæjar stórefld, með áherslu á heilbrigðisþjónustu, menntun, samgöngur og öryggi.
Tengdar greinar
Uppfært: 6. september 2026










