MAK
Leyni
Höldur
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Fréttir

Magni og Eiríkur undirrituðu nýjan samning Akureyrarbæjar og Tónræktarinnar

Eftir Ritstjórn·
Magni og Eiríkur undirrituðu nýjan samning Akureyrarbæjar og Tónræktarinnar
Eiríkur Björn og Magni takast í hendur að undirritun samningsins lokinni. Mynd: Akureyri.is

Í morgun undirrituðu Eiríkur Björn Björgvinsson bæjarstjóri á Akureyri og Magni Ásgeirsson tónlistarmaður nýjan fimm ára samning Akureyrarbæjar og Tónræktarinnar. Markmið samningsins er að veita ungu fólki í bænum möguleika á að afla sér tónlistarfræðslu og bjóða upp á aukið úrval á því sviði.

Nám í Tónræktinni hentar bæði byrjendum og þeim sem lengra eru komnir. Kennsla fer fram í litlum hópum sem raðað er í eftir aldri og getu. Einnig er hægt að sækja um einkakennslu. Nemendur læra hvort heldur sem er að spila eftir nótum eða eyranu. Tónfræði er fléttað inn í námið í tengslum við það sem verið er að fást við hverju sinni en er ekki kennd sem sér námsgrein.

„Námið er góð viðbót við fjölbreytt tónlistarnám í bænum og eflir Akureyri sem menningarbæ,“ sagði Eiríkur Björn við þetta tækifæri í samtali við Akureyri.is

Tengdar greinar

Uppfært: 22. apríl 2026