MAK
Leyni
Höldur
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Íþróttir

Maggi og Jens í 13. sæti á EM með U20

Eftir María Hjelm·
landslids-2026-hand-u20
Jens Bragi og Magnús Dagur. Mynd: KA· kaffid.is

KA átti tvo fulltrúa í U20 ára landsliði Íslands í handbolta sem lék á Evrópumeistaramótinu sem fram fór í Rúmeníu, þá Jens Braga Bergþórsson og Magnús Dag Jónatansson. Þetta kemur fram á vef KA.

Íslenska liðið vann 32-27 sigur á Austurríki í fyrsta leiknum í riðlinum en Jens gerði 3 mörk í leiknum. Í kjölfarið kom 28-33 tap gegn sterku liði Spánverja, þar sem Jens gerði 2 mörk. Það þýddi að lokaleikurinn gegn Lettlandi var úrslitaleikur um sæti í milliriðli. Eftir hörkuleik tókst strákunum að vinna 31-29 sigur og þar með sæti í milliriðli tryggt og gerði Jens 2 mörk.

Í fyrsta leik milliriðilsins mættu strákarnir Króatíu, eftir að Ísland hafði leitt 13-12 eftir fyrri hálfleikinn voru það Króatar sem unnu 25-26, en sigurmarkið kom er tvær sekúndur lifðu leiks. Jens gerði 2 mörk í leiknum. Aftur þurftu strákarnir að sætta sig við tap í næsta leik er þeir mættu sterku liði Danmerkur en Danir unnu 29-31 þar sem Jens gerði 6 mörk. Því næst var leikið gegn Noregi, en íslensku strákarnir leiddu 14-12 í hálfleik en tókst ekki að halda út og Noregur vann 27-31 sigur. Jens gerði 6 mörk og Maggi 2 í leiknum.

Strákarnir voru ekki af baki dottnir og svöruðu fyrir sig með 35-23 stórsigri á Ísrael í næsta leik þar sem Jens gerði 6 og Maggi 2 mörk. Niðurstaðan varð því að leika um 13. sæti þar sem heimamenn í Rúmeníu biðu. Sigur íslenska liðsins var aldrei í hættu en staðan var 21-10 í hálfleik og að lokum vannst 39-26 stórsigur þar sem Jens gerði 2 mörk og Maggi eitt mark.

Með þessum árangri tókst íslenska liðinu að tryggja sæti á Heimsmeistaramótinu næsta sumar sem fram fer í Makedóníu en þá verða strákarnir komnir upp í U21 flokk.

Tengdar greinar

Uppfært: 6. september 2026