Magðalena Ólafsdóttir, nítján ára knattspyrnukona úr Þór/KA á Akureyri, er á leið til Skotlands nú um mánaðarmótin á reynslu hjá skoska liðinu Forfar Farmington. Þetta kemur fram í frétt á vef Þórs en þar segir jafnframt að samningur hennar við liðið sé gerður tímabundið til reynslu í einn mánuð. Á þeim tíma ætti hún að ná þremur leikjum með liðinu. Í lok febrúar verður síðan tekin ákvörðun um framhaldið.
Spennt að takast á við verkefnið
Magðalena kveðst spennt yfir tækifærinu og segist hlakka til að sjá hvernig fer en hún verður fyrsta íslenska knattspyrnukonan til að spila í skosku úrvalsdeildinni. „Ég hef verið í sambandi við þjálfara liðsins, sem er írskur, og mér líst vel á þetta. Ég mun búa hjá eldri konu í Forfar þannig að ég þarf ekki að hafa miklar áhyggjur af því að koma í nýtt og framandi umhverfi. Ég veit lítið um fótboltann í Skotlandi, en er spennt að takast á við þetta verkefni og sjá hvar ég stend,“ segir Magðalena í samtali við thorsport.is.
Fyrirliði í Íslandsmeistaraliði 2. flokks
Magðalena lék með Hömrunum, varaliði Þórs/KA, í 2. deild á síðasta tímabili og var fyrirliði liðsins, ásamt því að vera fyrirliði í Íslandsmeistaraliði 2. flokks kvenna með liði Þórs/KA/Hamranna. Hún kom síðan yfir í raðir Þórs/KA í lok júlí og lék tvo leiki í úrvalsdeildinni á lokaspretti Íslandsmótsins.
UMMÆLI