Einn maður var inni í frystihúsinu í Hrísey þegar eldur kom þar upp í nótt. Hann var nývaknaður þegar eldurinn kom upp og tókst að koma sér út og hringja á Neyðarlínuna. Þetta kemur fram á vef RÚV.
Frystihúsið gjöreyðilagðist í brunanum sem kom upp í nótt. Maðurinn, sem er starfsmaður frystihússins, gisti í svefnaðstöðu fyrirtækisins í nótt. Hann vaknaði um sexleytið og varð var við eldinn. Hann er heill á húfi.
Það tókst að slökkva eldinn klukkan tíu í morgun en á þriðja tug slökkviliðsmanna börðust við eldinn.