MAK
Leyni
Höldur
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Fréttir

MA vann Delta-deild forritunarkeppni framhaldsskólanna

Eftir Ingólfur Stefánsson·
Forritunarkeppni framhaldsskólanna
Háskólinn í Reykjavík hefur staðið fyrir Forritunarkeppni framhaldsskólanna í fjölmörg ár og hefur ásókn í keppnina aukist ár frá ári enda til mikils að vinna. Forritunarkeppni framhaldsskólanna er ekki eingöngu ætluð þeim sem hafa reynslu af forritun fyrir heldur er hún fyrir alla framhaldsskólanema, jafnt þá sem hafa lært forritun og aðra. Við hvetjum því alla til að koma og prófa. Keppninni er skipt í þrjár deildir, eftir erfiðleikastigi: alfa, beta og delta.· kaffid.is

Forritunarkeppni framhaldsskólanna fór fram í Háskólanum í Reykjavík sl. laugardag. Keppt var í þremur deildum eftir erfiðleikastigi, Alfa, Beta og Delta, og fóru lið Tækniskólans með sigur af hólmi í Alfa deild og Beta deild og lið Menntaskólans Akureyri í Delta deild.

Lið Menntaskólans á Akureyri skipuðu þau Dagbjört Rós Hrafnsdóttir, Elvar Björn Ólafsson og Lárus Vinit Víðisson.

Þá voru veitt aukaverðlaun fyrir besta nafnið, sem kom í hlut liðs úr Menntaskólanum í Reykjavík, og lið frá Menntaskólanum á Akureyri sigraði myndakeppnina. Þær Kolfinna Eik Elínardóttir og Nína Rut Arnardóttir skipuðu lið MA í myndakeppninni.

HR hefur staðið fyrir Forritunarkeppninni í fjölda ára og hefur aðsókn í keppnina aukist með hverju árinu. Í ár tóku alls 135 nemendur þátt í 61 liði og var bæði keppt í HR og Háskólanum á Akureyri.

Tengdar greinar

Uppfært: 25. apríl 2026