NTC

Lystigarðurinn á Akureyri fær nýja heimasíðu

Lystigarðurinn á Akureyri fær nýja heimasíðu

Lystigarðurinn á Akureyri hefur fengið nýja heimasíðu þar sem stefnt er á að birtar verði reglulega fréttir af því sem er að gerast og tengist starfinu í garðinum. Þetta kemur fram á vef Akureyrarbæjar.

Á vefnum er einnig sagt frá sögu garðsins, fjallað um styttur og minnismerki, húsin í garðinum og birtar sérstakar umgengnisreglur sem gestum Lystigarðsins ber að virða.

Nýja síðan er ennþá að einhverju leyti í vinnslu en þess er vænst að hún hafi tekið á sig endanlega mynd fyrir páska.

Heimasíða Lystigarðsins á Akureyri.

Allar ábendingar um nýju síðuna eru vel þegnar og er best að senda þær á netfangið lystigardur@akureyri.is.

VG

UMMÆLI

Sambíó