MAK
Leyni
Höldur
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Fréttir

Lyfja fagnaði 30 árum í Kjarnaskógi – MYNDIR

Eftir Hákon Orri Gunnarsson·
15.04.2026 Kjarnaskógur – Lyfja-0140
kaffid.is

Það var bros á hverju andliti í Kjarnaskógi síðastliðinn miðvikudag þegar Lyfja bauð upp á uppistand með Sögu Garðarsdóttur í tilefni af 30 ára afmæli apóteksins. Veðrið lék við gesti, sem voru rúmlega 100 talsins, en markmiðið var að kitla hláturtaugarnar og næra andann í fallegu umhverfi skógarins.

Karen Ósk Gylfadóttir, framkvæmdastjóri Lyfju, var á staðnum og var afar ánægð með stemninguna.

„Við hjá Lyfju ákváðum að hugsa út fyrir boxið í tilefni af stórafmælinu og niðurstaðan var að bjóða upp á uppistand með einni fyndnustu konu landsins, Sögu Garðars, víðs vegar um landið. Reynslan sýnir að bæði hlátur og útivera næra andann og létta lundina. Við hófum leikinn á Egilsstöðum og rétt fyrir páska var leiðinni heitið í Hellisskóg við Selfoss. Viðburðurinn í Kjarnaskógi heppnaðist afar vel enda var stemningin einstök og við erum afar ánægð með að sjá hversu margir lögðu leið sína út í náttúruna til að njóta með okkur,“ segir Karen Ósk.

Lyfja fagnaði 30 árum í Kjarnaskógi – MYNDIR
Lyfja fagnaði 30 árum í Kjarnaskógi – MYNDIR

Tengdar greinar

Uppfært: 6. september 2026