Lundar í Grímsey

Lundinn mættur í Grímsey

Fyrstu lundarnir mættu til Grímseyjar í gær, 9 apríl. Það sást til þeirra skammt fyrir utan ströndina á miðvikudaginn og í gær tóku systurnar Unnur og Halla Ingólfsdætur eftir þeim í björgunum suður við vitann. Fjallað er um lundana á vef Grímseyjar.

„Það hefur tekið vel upp af snjónum í hlýindum undanfarna daga þannig að lundinn ætti að eiga auðvelt með að nálgast holurnar sínar og hefja vortiltektina,“ segir í tilkynningunni á vef Grímseyjar.

Vikulegt fréttabréf

Fáðu helstu fréttir vikunnar frá Kaffið.is í tölvupósthólfið.

Vinsamlegast bíddu meðan við skráum þig!

Takk fyrir að skrá þig!