Lovísa Rut Aðalsteinsdóttir, blakkona, er íþróttamaður Dalvíkurbyggðar árið 2024. Lovísa er fyrirliði Deildar- og Íslandsmeistara KA í blaki þar sem hún spilar lykilhlutverk í liðinu.
Þetta er í annað sinn sem Lovísa er valin íþróttamaður Dalvíkurbyggðar en hún vann titilinn einnig árið 2022.
„Lovísa varð Íslandsmeistari og Deildarmeistari í blaki á síðasta keppnistímabili með sínu liði KA. Hún spilar miðju og spilaði flesta leiki KA á síðustu leiktíð og það sem af er þessari leiktíð. Lovísa Rut er frábær fyrirmynd í sinni íþrótt. Hún sýnir metnað og dugnað við æfingar og hefur það skilað sér inn á blakvöllinn með þessum góða árangri. Lovísa er að vinna titillinn íþróttamaður Dalvíkurbyggðar í annað skiptið,“ segir í tilkynningu Dalvíkurbyggðar.
UMMÆLI