Aðgerðum RARIK vegna óveðranna sem gengu yfir landið 5. og 6. febrúar er að mestu lokið. Vindálag, selta og eldingar herjuðu á kerfið með þeim afleiðingum að staurar brotnuðu og línur slitnuðu.
Hér er yfirlit yfir stöðu helstu truflana sem urðu á rafmagnsafhendingu í dreifikerfi RARIK:
- Helgafellssveit – Rafmagnstruflanir hófust á miðvikudaginn kl. 14:00 en þá tókst að koma rafmagni á aftur stuttu síðar. Rafmagnið fór aftur af kl. 23:00 sama dag og tókst að koma því á aftur að hluta en rafmagnslaust var áfram í Kolgrafarfirði til rúmlega 17:00 á fimmtudag.
- Skógarströnd/Álftafjörður – Rafmagn fór af á Skógarströnd og í Álftafirði kl. 16:08 á miðvikudaginn. Bilunin fannst í Álftafirði og voru flestir viðskiptavinir komnir með rafmagn kl. 10:35 á fimmtudegi. Varavél var tengd við einn viðskiptavin kl. 23:20 þar til hægt er að fara í viðgerð.
- Mýrar – Rafmagn fór af á Mýrum kl. 17:58 á miðvikudaginn. Um fjölda bilana var að ræða á línum og tóku bilanaleitir og viðgerðir langan tíma. Klukkan 18:51 á fimmtudag var rafmagn komið á hjá öllum viðskiptavinum okkar á svæðinu.
- Landbrot – Rafmagnslaust varð í Landbroti á miðvikudag kl. 18:42 og tókst að koma rafmagni þar á aftur aðfaranótt fimmtudags kl. 01:30. Skemmdir voru þó á línunni og farið var í endanlega viðgerð á fimmtudagskvöld. Því þurfti að taka rafmagn af hjá nokkrum viðskiptavinum á svæðinu frá kl. 19-20:30 í gærkvöldi.
- Selvogur – Rafmagnslaust varð kl. 19:11 á miðvikudag og tókst að koma rafmagni þar á kl. 00:30 aðfaranótt fimmtudags.
- Stíflisdalur í Kjós – Rafmagnslaust varð í Stíflisdal kl. 18:55 á miðvikudag. Flestir viðskiptavinir okkar voru komnir með rafmagn kl. 10:20 á fimmtudag. Einn viðskiptavinur okkar var þó án rafmagns til kl. 19:20 á fimmtudagskvöld.
- Vestur–Landeyjar – Rafmagnslaust varð á þessu svæði um kl. 10:00 á fimmtudag. Þar tókst að koma rafmagni aftur á en hluti svæðisins var rafmagnslaus til kl. 16:20 sama dag.
- Haukadalur í Dalabyggð – Tilkynning barst um rafmagnsleysi í Haukadal um kl. 23:30 á miðvikudag. Allir nema einn viðskiptavinur voru komnir með rafmagn kl. 02:15 á aðfaranótt fimmtudags en um kl. 21:00 í gærkvöldi var rafmagn komið til allra.
- Reyðarfjörður – Í sunnanverðum Reyðarfirði (frá Kolmúla að Berunesi) varð rafmagnslaust um kl. 9:10 á fimmtudagsmorgun. Þegar verið var að leita að bilun fór rafmagn einnig af austanverðum Fáskrúðsfirði, út að Vattarnesvita, í stuttan tíma. Allir viðskiptavinir voru komnir með rafmagn um kl. 20 á fimmtudagskvöld.
- Brattholt að Keldnaholti (Flói) – Taka þurfti rafmagn af kl. 10:45 á fimmtudag vegna þess að lína lá á veginum. Þessari aðgerð var lokið og rafmagn komið aftur á kl. 15:56 sama dag.
Óveðrið hafði mest áhrif á Vesturlandi, Suðurlandi og Austurlandi en lítið var um truflanir í dreifikerfi RARIK á Norðurlandi. Töluvert var um innhringingar viðskiptavina vegna staðbundinna truflana í lágspennukerfinu og einnig urðu minni fokskemmdir á spennistöðvum og slíku.
Alls urðu 1355 heimili og fyrirtæki tengd dreifikerfi RARIK fyrir rafmagnsleysi eða truflunum í skemmri eða lengri tíma vegna óveðursins.
Starfsfólk RARIK vill þakka öllum viðskiptavinum sínum sem urðu fyrir áhrifum af rafmagnstruflunum fyrir þolinmæði og skilning meðan þetta ástand varði.