NTC

Lokanir gatna á Akureyri um verslunarmannahelgina

Lokanir gatna á Akureyri um verslunarmannahelgina

Fjölskylduhátíðin Ein með öllu fer fram á Akureyri um verslunarmannahelgina og þá verður einnig efnt til fjallahlaupsins Súlur Vertical á föstudag og laugardag. Af þessum sökum verður nokkuð um tímabundnar lokanir gatna til að tryggja öryggi gesta og þeirra sem taka þátt í viðburðunum. Þetta kemur fram í tilkynninngu á vef Akureyrarbæjar.

Um er að ræða nokkuð umfangsmiklar lokanir á miðbæjarsvæðinu og suður að Leiruveg vegna Einnar með öllu en lokanir vegna Súlur Vertical verða einvörðungu laugardaginn 3. ágúst frá kl. 11.00-18.00 eða þar til síðustu keppendur hafa hlaupið hjá (sjá meðfylgjandi kort).

Dagskrá Einnar með öllu má sjá hér.

Allt um Súlur Vertical á heimasíðu fjallahlaupsins.

Myndir af vef Akureyrarbæjar:

Sambíó

UMMÆLI

Sambíó