Lokanir á umferð í miðbæ Akureyrar 12.–14. júní
Eftir Hákon Orri Gunnarsson·

Vegna fjölbreyttrar dagskrár í miðbænum verður umferð vélknúinna ökutækja takmörkuð á Strandgötu frá Hofsbót, Túngötu frá Bankastræti og Skipagötu að Hofsbót frá klukkan 16.00 þann 12. júní til klukkan 23.00 þann 14. júní. Þetta kemur fram á vef Akureyrarbæjar þar sem skipulagssvið sveitarfélagsins biður vegfarendur um að sýna aðgát og fylgja merkingum á svæðinu.
Tengdar greinar
Uppfært: 6. september 2026










