Gæludýr.is

Lokadagur uppboðs til styrktar Píeta samtökunum í dag

Lokadagur uppboðs til styrktar Píeta samtökunum í dag

Í dag, 21. desember, klukkan 18:00 mun uppboði til styktar Píeta samtökunum ljúka.

Uppboðið er haldið á stafræna uppboðshúsinu Uppboð.com en fjöldi listamanna, hönnuða og fyrirtækja hafa lagt málefninu lið með því að gefa verk sín, vörur og vinnu.

Söluandvirði hlutana við lok uppboðs rennur til Píeta samtakana óskipt og má þar finna verk eftir listamenn eins og Tolla, Hrafnhildi Arnardóttur/Shoplifter, Lilju Jóns, Andra Snæ Magnason, Sigríði Þóru Óðinsdóttur ásamt vörum frá 66Norður, Orr Gullsmiðum og Stefánsbúð.

Uppboðið má sjá á vefslóðinni: https://www.uppbod.com/is/auction/4

Um Daggir Solutions (Uppboð.com):

Uppboð.com er stafrænt uppboðshús þar sem notendur geta skráð hluti á uppboð sem sérfræðingar á vegum Uppboð.com meta og bjóða upp. Vefurinn er rekinn af Daggir Solutions ehf. sem sérhæfir sig í þróun stafrænna lausna á sviði netviðskipta og ferla. 

Um Píeta Samtökin:

Píeta samtökin veitir hjálp, aðgengilega þjónustu, stuðning og meðferð fyrir þá sem eru í sjálfsvígshættu og brú í úrræði fyrir aðra. Þjónustan er með öllu gjaldfrjáls og stendur til boða öllum þeim sem hafa náð átján ára aldri og viðtölin eru fyrir einstaklinga með sjálfsvígshugsanir eða eru í sjálfsskaða og aðstandendur þeirra. 

Sambíó

UMMÆLI

Sambíó