Viðgerðir á kirkjutröppunum að Akureyrarkirkju hefjast á næstu dögum og á meðan þeim stendur verður lokað fyrir umferð gangandi vegfarenda um tröppurnar. Áætluð verklok eru þann fimmtánda október og verða tröppurnar því lokaðar næstu mánuði. Fréttamiðillinn Akureyri.net greinir frá þessu en í umfjöllun miðilsins segir óvíst hvenær fólki verður heimilt að ganga upp nýjar kirkjutröppur.
Framkvæmdirnar felast í því að brjóta upp tröppurnar, steypa nýjar, koma fyrir snjóbræðslukerfi, frárennsli, setja upp handrið með lýsingu og leggja nýjar hellur. Á meðan unnið er við tröppurnar verður vinnusvæðið í kringum kirkjuna alveg lokað af og því engin umferð um tröppurnar eða göngustíginn að Sigurhæðum.
„Ferðamenn jafnt og íbúar munu því ekki geta gengið um kirkjutröppurnar frá því að framkvæmdir hefjast núna á næstu dögum og í einhverja mánuði. Hvort þær verða svo opnaðar að nýju í október eða ekki fyrr en næsta vor verður að koma í ljós,“ segir í frétt Akureyri.net.
UMMÆLI